AB-Sportvörur - Alltaf í boltanum 

AB-Sportvörur

Svartur hringur með hvítu „AB“ að innan; textinn fyrir neðan er „AB-SPORTVÖRUR“.

Hjá AB-Sportvörum finnur þú allt sem þú þarft fyrir æfingar og keppni.

Við erum umboðsaðilar fyrir Kempa, Uhlsport og Baden á Íslandi og bjóðum upp á úrval af skóm, fatnaði, boltum og aukabúnaði fyrir bæði einstaklinga og lið.

Markmið okkar er einfalt – að veita topp þjónustu, gæði og verð sem gera þér kleift að standa þig betur á vellinum.

Ekki hika við að hafa samband við okkur – við erum alltaf til staðar til að hjálpa þér að finna réttu vörurnar fyrir þig eða þitt lið.

Brot af því besta sem við höfum upp að bjóða

Kempa | Spectrum Synergy Pro

  • Kempa Spectrum Synergy Pro er úrvals keppnisbolti fyrir þá sem vilja ekkert nema það besta. Einstök 30 hliða hönnun. Mjúkt og grip gott yfirborð með Kempa áferð veitir þér frábært grip og framúrskarandi boltastjórnun.
  • Froðufóðruð marglaga uppbygging gefur boltanum dásamlega mjúka tilfinningu. 
  • Sterk latex blaðra með textílklæðningu heldur loftinu vel og dregur úr þörfinni á að pumpa.
  • Boltinn er fullkomlega hentugur fyrir notkun með harbixi. 

Kempa | Wing Lite 2.0

Kempa Wing Lite 2.0 er nýjasta útgáfan af léttustu innanhússkónum frá Kempa – hannaðir fyrir leikmenn sem vilja hraða, liðleika og fullkomið grip. Yfirborð sólans er þróað í samstarfi við Michelin, sem tryggir einstakt grip á vellinum.


Helstu eiginleikar:


  • PowerCore: Létt EVA dempun með mjúkum púðum sem veita betri höggdeyfingu, aukin þægindi og frábært viðbragðs viðnám
  • Torsion Plate: Gefur þér meiri stjórn, betra jafnvægi og eykur stöðugleika í snöggum hreyfingum
  • Soft Fit: Teygjanleg innri fóðrun sem formar sig að fætinum fyrir hámarksþægindi

Kempa | Kourtfly

Kraftur – Nákvæmni – Fullkomið grip | Kempa Kourtfly eru háþróaðir innanhús skór hannaðir fyrir hámarks stöðugleika, grip og sprengikraft. Fullkomnir fyrir leikmenn sem krefjast nákvæmni í öllum hreyfingum.


Helstu eiginleikar:

  • Michelin sóli: Sérþróuð gúmmí blanda sem byggir á tækni úr mótorsporti. Sólinn er með innbyggðu stefnumótandi slitlagi sem tryggir hámarks stjórn – í öllum aðstæðum.
  • Re-Action Zone: Tryggir öruggan stöðugleika í snöggum áttaskiptum og snúningshreyfingum. Stuðlar að betri sprengikrafti og lipurð á vellinum.
  • Ergonomic Shape: Hællinn er mótaður eftir náttúrulegri hreyfingu fótarins og hjálpar þér að skila kraftinum beint niður í gólfið.
  • Protection Zone: Styrking á framhluta skóarins sem ver bæði þig og skóna. Gefur aukið grip og stöðugleika.


Hentar fyrir: Handbolta - Blak - Körfubolta - Innanhúss íþróttir þar sem grip, hraði og stöðugleiki skipta öllu

Hafa samband

Við erum alltaf í boltanum og til þjónustu reiðubúin. Hafðu samband og við munum svara þér eins fljótt og auðið er.

Contact Us